daglegt brauð hjá húsfrúnni

hugrenningar Kötu

26.11.2008 20:20:40 / katrin

bloggið dauður!!

ég hugsa að ég láti þetta blogg deyja;) þetta er búið að vera í hnotskurn í langan tíma:) en ég er eins og flestir á Facebook og svo auðvitað með barnalandssíðuna... tel það nóg:)
jei þarf ekki að hugsa um þetta meir hehe:d
Knús á ykkur sem nenntu að skoða þessa síðu:)
Katan

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.11.2008 13:42:21 / katrin

1. nóvember

jæja ég hálfpartinn neyðist til að skrifa...:s

jamm það er nú ýmislegt búið að brasa í október. ritgerðir gerðar og farnar í skúffu sem og mörg verkefni. Þetta nám hentar mér mjög vel, ég hef nægan tíma til að sinna fjölskyldunni allavega og er það fyrir mestu. mér finnst líka gaman, búin skemmta mér konunglega með stelpunum í grúppunni. ég er mjög heppin allavega að því leitinu að við náum ótrúlega vel saman:D  við hittumst eitt föstudagskvöldið í skólanum og tókum nokkra bjóra með og gerðum verkefni og vá hvað var gaman!!! Verkefnin kláruðust 1 2 og 3;) hehe
ég er hins vegar í miklum söknuði líka... ég sakna bræðra minna alveg svakalega mikið!! það er ekki hægt að hugsa sér líf án þeirra!! þetta á eftir að taka góðan tíma að venjast hjá mér skal ég ykkur segja. ég sakna Dk eiginlega ekki neitt... mér finnst gott að vera komin heim á ný. það er bara svo skrítið að vera hérna án þeirra... það er svo margt sem minnir mann á góðan tíma með þeim, æskuna og fl. svo bætir það ekki á að fólk út á götu spyr hvað sé að frétta af þeim, þá fyllist maður af enn meiri söknuði eins og það sé ekki nóg fyrir!!! en jæja svona er lífið:cry: 

annars er gott að frétta, við höfum haft svakalegan snjó en núna er hiti og sól og allur snjórinn að fara:S ég vil bara hafa snjóinn!!! margt hægt að gera í snjónum:D
á eftir koma mamma, pabbi og Inga í vöfflukaffi mmm hlakka til
á morgun förum við síðan austur í hrygg jammí... snilld.
jæja segi þetta gott í bili:)
hafið það gott
knús, katan

» 10 hafa sagt sína skoðun

01.10.2008 10:43:38 / katrin

Rotta í lauginni...

... tók eftir því að ég bloggaði síðast akkúrat fyrir mánuði síðan8| vá hvað tíminn er fljótur að líða:)
en já þetta með rottuna verð ég að segja frá:)
það var þannig að ég fór í sund á föstudagsmorguninn, þegar ég var búin að synda og komin upp úr heyrði ég eina gamla konu kalla frá hinum enda sundlaugarinnar "það er rotta í lauginni" og ég snéri mér við á hæl og sá þá eina rottu syndandi baksund í hinum enda sundlaugarinnar!!! ég sá mann koma út og sagði honum að tilkynna að það væri rotta í sundlauginni, honum brá svolítið og held ég að hann hafi ætlað að redda málunum í fötunum en þegar hann hljóp að lauginni dreif rottan sig upp úr og hljóp í burtu.
þegar ég kom síðan inn í klefann sagði ég sundlaugarverði frá rottunni og hún heldur betur hrökk í kút og fór út úr klefanum. svo heyrði ég hjá sundlaugavörðum þegar þeir voru að tala um þetta atvik að það hefði verið að bora fyrir klóakinu í nýju vaxtaræktinni og rottan hafi komið þaðan. Þeir fóru síðan að grínast með að þetta hefði verið vaxtaræktarrotta frá Sigga og að hún vissi greinilega að það væri frítt í sund eftir ræktina:lol: hehe

og þá kemur smá brandari...
" ef þú syndir fram á hægðir, skaltu rólega fara úr sundskýlunni og bregða henni yfir hægðirnar og kasta síðan skýlunni og skítnum eins langt og þú getur í burtu. þá forðast þú vandræðaleg atvik"  fóstbræður.

 hafið það gott
kv Katrín

» 8 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 20:30:58 / katrin

fleiri fréttir...

... já já það er aldeilis hvað er að bætast í barnahópinn allsstaðar, það er frábært á meðan að það er ekki ég sem er að fjölga hehe

alveg ótrúlegt hvað blessaðir kínverjar eru allir grannir!!!:s
já alveg rétt ég er að blogga... hmm áfram með þig stelpa

já nú er skólinn byrjaður aðeins hjá mér og enn sem komið er þá gengur vel og ekkert áfall að byrja í háskóla eins og ég var búin að ákveða:$ þetta lítur bara vel út. ég er byrjuð að lesa ævisögu semst útaf skólanum, það gengur furðu vel, held að ég sé sú eina sem er byrjuð að lesa;) ég fer bara í 2 próf og er það æðislegt, hlakka bara til jólanna, ekkert prófstress:D vona bara að prófin verði snemma;)

strákunum gengur vel á leikskólanum, þeir eru búnir að eignast vini þar og eru ánægðir:d alveg frábært:d

Valli sést ekkert heima hjá sér hann er stöðugt fyrir austan að hjálpa pápa mínum sem á nú reyndar afmæli á morgun, við að setja bústaðinn þeirra í stand... við fáum þá örugglega að gista þar e-ð í staðinn;)
annars gengur lífið bara vel hér á klakanum, maður er auðvitað enn að venjast breyttum lifnaðaraðstæðum, tala nú ekki um að nú þarf frúin að elda á kvöldin þar sem kokkurinn er annarsstaðar... það er reyndar fínt að elda svona sjá hvað maður getur og svona. svo er það reyndar svoleiðis að strákarnir fá heitann mat í hádeginu svo ég þarf eiginlega ekkert að elda á kvöldin;) en ég geri það samt yfirleitt.

frábært sem ég sá í dag, ég keypti mér Diesel gallabuxur í dk í mai á 400 kr danskar og sá svo alveg eins buxur í gallerí hér á akureyri á 17 þúsund8| ég var reyndar ógeðslega ánægð að sjá að þessar buxur eru greinilega í tísku og alles hér á landi;) en ég keypti mínar á útsölu og þær voru síðastar eftir og þess vegna voru þær svona ódýrar;)  en eins og allir vita þá eru þetta langdýrustu gallabuxurnar:)

jæja þá kveð ég í bili (skrifa eftir mánuð hehe)
knús á línuna Kata

» 15 hafa sagt sína skoðun

15.08.2008 16:04:14 / katrin

er kannski komin tími á að skrifa inn fréttir?

byrjum bara á júlí,

júlímánuður byrjaði á að strákarnir kvöddu danska leikskólann eins og þið eruð búin að sjá á myndum. Þeir flugu síðan heim með mömmu og pabba þann 6 júlí, þá tók við pökkunar brjálæði hjá okkur og þá aðallega honum Valla mínum;) því ég var að vinna til 10 júlí. Það var troðið í gám 16 júlí og við flugum heim 17 júlí... þegar á klakann var komið var þrætt bílasölur og gekk það á degi 2 að finna bíl, Skoda octaviu, frábær bíll!!! enga helv druslu meir hehe

Valli var settur í sjálfboðavinnu út um allt og við hin nutum sumarfrísins aðallega á hótel mömmu:) við fengum svo húsið 5 ágúst og gáminn 7 ágúst... það var rosa gott að fá dótið okkar aftur:) mamma, tengdamamma, Gunnar Helgi, Viðar og fleiri hjálpuðu við að taka út gámnum:)

Valli er svo ekki kominn með vinnu, en við erum ekkert stressuð yfir því, það hlýtur að koma :)

Við eignuðumst litla frænku á brúðkaupsafmælinu okkar Valla, Sverrir og Ansý eignðust 3 stelpuna. Einstaklega myndarleg, sver sig í ættina hehe :haha:

strákarnir eru byrjaðir á leikskóla og eru so far ánægðir:) það gengur sem sagt vel.

Þeir eru svakalega ánægðir með húsnæðið okkar, þeir eru í sér herbergi og Ævars herbergi er svakalega stórt:) þetta er mjög gott hverfi, krakkarnir leika sér úti fram eftir kvöldi, þetta mynnir mann bara á æskuna:) já svo ekki sé mynnst á veðrið í sumar hér á íslandi, alveg ótrúlegt!!! svakalega gott veður upp á hvern einasta dag:)

ég bíð svo bara spennt yfir að byrja í skólanum í næstu viku:)

en nú erum við að fá gesti, halda upp á þrítugsafmælið hans Valla:) bara örlítil grillveisla fyrir bara foreldra og systkyni Valla og jú mömmu og pabba:)

kv Katrin


» 10 hafa sagt sína skoðun

08.08.2008 15:25:12 / katrin

hver er maðurinn?

ég ætla bara að herma eftir Valla og koma með smá gátu og allir að vera með!!! :d

hver er maðurinn?

» 23 hafa sagt sína skoðun

21.07.2008 14:22:05 / katrin

Heim...

... við erum komin heim:D ekkert smá sátt við það:) komin á "nýjan" bíl Skoda Oktaviu eins og allir íslendingar, en rosa flottur bíll sem eyðir mjög litlu.. ekki veitir af, bensínverðið alveg upp fyrir allt og á bara eftir að hækka, eða það saggði hann;)

ég er komin með gamla gemsa númerið í notkunn og ef þið eruð ekki með það þá er ég í símaskránni eða www.ja.is . ég vil ekki skrifa það hér inn allavega, allsskonar perrar til hehe

annars er bara mjög gott að frétta af okkur, ég er búin að henda inn myndum inn á barnalandið.

hafið það gott

» 17 hafa sagt sína skoðun

21.07.2008 14:22:05 / katrin

Heim...

... við erum komin heim:D ekkert smá sátt við það:) komin á "nýjan" bíl Skoda Oktaviu eins og allir íslendingar, en rosa flottur bíll sem eyðir mjög litlu.. ekki veitir af, bensínverðið alveg upp fyrir allt og á bara eftir að hækka, eða það saggði hann;)

ég er komin með gamla gemsa númerið í notkunn og ef þið eruð ekki með það þá er ég í símaskránni eða www.ja.is . ég vil ekki skrifa það hér inn allavega, allsskonar perrar til hehe

annars er bara mjög gott að frétta af okkur, ég er búin að henda inn myndum inn á barnalandið.

hafið það gott

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2008 14:22:05 / katrin

Heim...

... við erum komin heim:D ekkert smá sátt við það:) komin á "nýjan" bíl Skoda Oktaviu eins og allir íslendingar, en rosa flottur bíll sem eyðir mjög litlu.. ekki veitir af, bensínverðið alveg upp fyrir allt og á bara eftir að hækka, eða það saggði hann;)

ég er komin með gamla gemsa númerið í notkunn og ef þið eruð ekki með það þá er ég í símaskránni eða www.ja.is . ég vil ekki skrifa það hér inn allavega, allsskonar perrar til hehe

annars er bara mjög gott að frétta af okkur, ég er búin að henda inn myndum inn á barnalandið.

hafið það gott

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 07:13:34 / katrin

Draumur rættist í gær...

... ég er stend á skýi!!!:d það hefur verið langþráður draumur hjá mér að fá að keyra vörubíl, já ég veit rosa feminin eða þannig, en ég ég veit ekki hvað það er, kannski af því að ég ólst upp meðal annars við að fá að sitja í bílnum hjá pabba sem krakki:$ en ég sem sagt fékk að keyra bílinn hans Bjössa bróður í gær, þvílík gleði og gaman!!! :D takk fyrir það kæri bróðir8)

annars er það helst í fréttum að flutningarnir eru í fullum sving, við pökkum og pökkum og endum í 75 pappakössum8|8|8|  og svo fer ég inn á milli í bæinn að kaupa meira sem þarf að pakka hehe.  Strákarnir fóru á sunnudaginn fyrir viku og er aðskilnaðurinn orðinn býsna erfiður, aðallega fyrir foreldrana!!

ég kvaddi vinnuna mína, og vinnufélaga með tárum á föstudaginn, púff hvað það var leiðinlegt!!! ég fékk fullt af gjöfum, geðveikt heppin. Við kvöddum vinnufélaga Valla líka á föstudaginn, ekki með tárum reyndar bara söknuði. ;)

það verður síðan leiðinlegast að kveðja fjölskylduna:^)

setjum í gám á miðvikudag og fljúgum heim á fimmtudag, verðum komin mjög snemma og ætlum að leita af bíl á fimmtudeginum. spennó... enginn justy samt:s:d

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 13:09:31 / katrin

flutningur

afsakið engin skrif í smá tíma... ég bara hef ekki nennt að skrifa um bara eitthvað en nú hef ég eitthvað að segja frá;)

strákarnir fara til íslands með mömmu og pabba á sunnudaginn, púff hvað ég kvíði fyrir því að hálfa væri nóg!!! en ég veit alveg að það verður í lagi, ég held eða veit að það verður fínt fyrir okkur Valla að fá að vera par í viku:) Við erum svo búin að panta far 17 júlí. svo þetta verða 11 dagar þar sem við verðum frá drengjunum.

við erum búin að selja bílinn þannig að við erum bíllaus þangað til liðið fer á sunnudaginn, svolítið skrítið að vera búin að hafa 2 bíla og svo allt í einu engann!! :) nú þurfum við bara að pakka öllu, erum svona eiginlega ekki byrjuð hehe, þetta tekur enga stund:) segjum það bara hehe

svo er síðasti dagurinn hans Valla í vinnunni í dag og síðasti leikskóladagurinn hjá strákunum á morgun;) úff hvað þetta er skritið

ég er komin í háskólann jei hlakka til að byrja:)

svo verður bara gaman að finna rétta bílinn fyrir okkur á íslandi:)

kveðjur

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.06.2008 14:35:36 / katrin

sveitt!!!

púff það er nú meira veðrið hér í dk!!! og pöddulífið alveg í fullum sving!!! oj risa kóngulær bjakk...

en það hafa sumir spurt okkur afhverju við viljum flytja heim og langar mig svolítið að segja frá því...
þegar ég var lítil stelpa, þá átti ég heima í sveit og ólst ég upp með 3 yndislegum systkynum eins og þið vitið líklega... mér fannst æðislegt að fara að synda í ánni, labba upp að Einarsstaðafoss og vaða í kalda vatninu og fá mér líka smakk því íslenska vatnið er jú best!!! mér fannst alltaf gaman og finnst það reyndar enn að fara í heimsókn til ömmu og afa og fá öðruvísi mat en heima og alltaf átti amma köku með kaffinu og jafnvel klaka í frystikistunni. Það var gaman að skreppa með mömmu og pabba í bæinn og kaupa inn og þá sérstaklega með pabba því hann átti það til að kaupa mikið meira nammi en mamma hehe. Það var gaman að vera frjáls krakki í sveitinni og geta farið á fjórhjól jafnvel skellinöðru og hvað þá á snjósleða já og skauta og skíði!!! bara gaman labba upp í heiði eftir bláberjum en þó aðallega krækiberjum. svo var farið á reiðnámskeið, smalað og margt fleira. svo var farið í kaffiboð til ættingja og fannst mér það ofboðslega gaman, alveg ómissandi og þess vegna vona ég að bræður mínir komi fljótt til íslands með fjölskyldur því ég mun sakna þeirra mjög mikið og synir mínir líka!!! ;)
ástæðan fyrir að við flytjum heim er einfaldlega vegna þess að við Valli viljum gefa drengjum okkar sömu æsku og við fengum því okkur finnst fjölskyldan  og vinir ómissandi og náttúran líka.:) Við erum ekki að flytja vegna veðurs hehe

Við hlökkum til að flytja heim til Íslands og það verður án efa gott fyrir drengina okkar að fá að fara í heimsókn til ömmu og afa bæði inn á Akureyri og í Birkimel:) og fá að upplifa hvað við upplifðum:)

knús til ykkar allra

» 8 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 18:41:35 / katrin

shit...

við erum nú aldeilis búin að vera að kaupa upp á síðkastið, hluti sem við ætlum að taka með okkur heim!!! Grill, Sláttuvél, heimabíó og fl... og eigum við eftir að kaupa meira og meget mere end det hehe  ég var einmitt að skoða þvottavél og þurrkara og erum við búin að ákveða að kaupa okkur nýtt, þetta par sem við erum með núna fylgdi með húsinu og ég held að það sé kominn sveppur í vélina:( tók og þreyf hana samt um daginn:$ veit ekkert hvað þessi þvottavél er gömul, ég ætla bara að versla mér nýtt og það borgar sig þokkalega að gera það hér í dk!!! ég var að skoða Símens par og hér úti kostar það um 10 þúsund kr danskar en á íslandi kostar sama parið 250 þúsund!!!8|8|8| jesús!!!

annars er fólk búið að koma að skoða húsið okkar og kom meira að segja með tilboð en tók það svo aftur á mánudaginn og vill koma að skoða á morgun aftur;) úff krossa fingur allir og vona að þau kaupi:) þetta er fyrsta fólkið sem skoðar, hús standa bara til sölu hér í bæ og ekkert gerist!!! úff það mundi róa okkur þvílíkt ef þetta gengur upp:)

haldið ekki að sonur okkar sá yngri sé byrjaður að vakna 6 á morgnanna!! oh hvað við erum ekki sátt við hann... svo í gærkvöldi fór hann klukkutíma seinna að sofa en venjulega en nei nei hann vaknaði í staðinn klukkan 5 í nótt!! og neitaði að fara að sofa aftur oh8| og við erum buin að vera þreytt í allan dag, ekki það að við fórum ekki bæði með honum fram heldur byrjaði ég að reyna að svæfa drenginn aftur held í 45 min og þá tók Valli hann og fór með honum fram;) þetta er sko ekkert að gera sig.

Svo á föstudaginn förum við hjónin út að borða með borgarstjóranum jí hehe þetta er eitthvað með vinnunni hans Valla og verður örugglega e-ð helv smörrebröd á boðstólnum oj best að éta áður en ég fer hehe

Það er búið að vera alveg yndislegt veður, bara svona 12- 18 stig, íslenskt sumarveður bara;) ekkert alltof heitt neitt bara passlegt:) enda hjóla ég með strákana í leikskólann.

jæja ég held að þetta sé nú bara fínasta update hjá mér;)
kveðjur til ykkar, Katrin

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.05.2008 12:58:40 / katrin

blogga?

ég var að verða svolítið þreytt að opna síðuna og sjá alltaf "gníst";)  en af mér er bara ágætt að frétta, verkfallið er búið í bili, sem betur fer. Það var yndislegt að mæta í vinnu á miðvikudaginn:D og svo vann ég fimmtudaginn og fór í 4 daga helgi;) alveg sérdælis príðilegt eins og bræður mínir sögðu mikið í denn og segja stundum enn í dag, reyndar er annar þeirra með eitt hallærislegasta orð á heilanum!!! hver kannast ekki við það, það er í tísku núna held ég "SÆLL"!!! hrikalega hallærislegt hehe
    annars er þvílíka veðrið hérna núna fyrir þá sem fíla svona mikinn hita hehe, ég held að ég verði bara inni í dag!! þetta er í lagi í svona 3 vikur svo vil ég bara íslenskt sumar, labba upp á heiði og éta hundasúrur, keyra fjórhjól og já fara í berjamó!!! guð hvað ég hlakka til að geta farið í berjamó;)
    oh hvað mér finnst stundum gott að vera ein með strákana heima, þeir fara bara inn í herbergi og leika sér saman og loka yfirleitt hurðinni og ekkert vesen, þvílíkur lúxus en um leið og pabbinn kemur heim vilja þeir leika við hann og ef hann nennir ekki væla þeir bara í honum, alveg ótrúlegt reyndar!
    já þetta með verkfallið sé búið í bili, það kemur í ljós hvort leikskólakennarar hér fari í verkfall þann 19 mai og þá er ekki víst að við leiðbeinendur meigum passa börn ef þeir eru ekki! það kemur í ljós á þriðjudaginn:S alveg ótrúlegt, það er eins gott að það verði bara samið strax!!! ég fæ loksins hana Eddu mína til mín í endann mai og þá er eins gott að drengirnir geti komið í leikskólann!!!:evil:8)
 jæja ég held að þetta sé bara gott í bili
kveðjur til ykkar


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 11:54:59 / katrin

gníst....

jæja góðir hálsar, ég frétti það hjá manninum mínum að ég er byrjuð að gnísta tönnum aftur!!!:$
sko málið með mig er einfaldlega það að ég þoli illa breytingar, þegar við fluttum hingað gnísti ég tönnum eins og ég veit ekki hvað en hætti því þegar ég var búin að koma mér almennilega fyrir og leið vel en nú þegar ákveðið er að flytja heim þá byrja ég:S

en já norðurlandið er best vil ég meina fyrir okkur, öll okkar fjölskylda er fyrir norðan nema Inga og Maggi... já og nánast allir vinirnir líka... við erum bara orðin spennt yfir þessum flutningum nema ég... ég hlakka bara til að vera flutt og þegar lífið verður komið í eðlilegt horf:D

annars voða lítið að frétta... verkfallið stendur enn yfir, en strákarnir fara í leikskólann í næstu viku vívívíví :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan
Dagsetning
9. febrúar 2010